Sækja um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna

USA Visa

HEIMSÆKJA BANDARÍKIN?

Ert þú að íhuga ferð til Bandaríkjanna í frí, vegna viðskipta eða af læknisfræðilegum ástæðum? Það eru tvær leiðir til þess að komast inn í Bandaríkin:

1. Sækja um áritun í sendiráði Bandaríkjanna eða á ræðismannsskrifstofu í þínu heimalandi eða í hvaða erlenda ríki sem er.

2. Farið til Bandaríkjanna án áritunar með rafrænni ferðaheimild. Til þess að komast til Bandaríkjanna án áritunar þarf umsækjandinn að vera með gilda ferðaheimild og vera frá landi sem er aðili að rafræna vegabréfskerfinu.

UM ÁRITANIR TIL BANDARÍKJANNA

Flestir sem heimsækja Bandaríkin koma þangað með ferðamannaáritun, sem er oftast gild í 1 til 10 ár. Vegabréfsáritun gefur handhafa tækifæri til þess að fara til Bandaríkjanna og óska landgöngu. Það er mikilvægt að skilja að samþykkt áritun tryggir ekki landgönguleyfi við landamæri Bandaríkjanna. Samt sem áður er flestum heimiluð landganga. Við komu að bandarískum landamærum mun innflytjendafulltrúi spyrja þig spurningar er varða tilgang heimsóknar þinnar til Bandaríkjanna, lengd dvala, hvort þú hafir næg fjárráð til þess að fjármagna dvölina og hvort þú eigir miða til baka. Það er mikilvægt að skilja að gild áritun eða ferðaheimild er nauðsynleg við innritun á flugvöllum og í höfnum.

 

Hlaða niður leiðbeiningum fyrir umsókn um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna

Þessi heimasíða er ætluð til þess að gefa umsækjendum um vegabréfsáritun til Bandaríkjanna allar þær upplýsingar sem þeir þurfa á að halda við að sækja um áritunina. Við getum ekki tryggt að umsókn þín verði samþykkt en ef þú fylgir okkar leiðbeiningum verður þú mjög vel undirbúin/n. Umsóknarbæklingurinn okkar skýrir í smáatriðum hvernig á að fylla út umsóknarformin, hvernig á að bóka viðtal og undirbúa sig fyrir það hjá bandarísku sendiráði eða ræðismannsskrifstofu og að lokum við hverju þú mátt búast á bandarískum landamærum. Við viljum að ferð þín til Bandaríkjanna verði eins ánægjuleg og mögulegt er og áhyggjulaus vegabréfsáritunarumsókn er fyrsta skrefið.

Gefðu þér tíma!
Umsókn um vegabréfsáritun getur tekið fáeinar vikur eða jafnvel mánuði. Tafir eru oftast tengdar því að bóka viðtalið og við að útvega frekar gögn (ef þess er óskað af sendiráðinu eða ræðismannsskrifstofunni). Það er því mælt með því að hefja umsóknarferlið eins snemma og hægt er.